Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 30. október 2014 19:30
Magnús Már Einarsson
Cisse leggur skóna á hilluna næsta sumar
Djibril Cisse ætlar að kveðja næsta sumar.
Djibril Cisse ætlar að kveðja næsta sumar.
Mynd: Getty Images
Djibril Cisse, fyrrum framherji Liverpool og franska landsliðsins, ætlar að leggja skóna á hilluna næsta sumar.

Hinn 33 ára gamli Cisse hefur verið að glíma við þrálát bak og nárameiðsli undanfarið hálft ár og hann hefur fengið nóg.

,,24 tíma á dag finn ég fyrir sársauka. Þegar ég horfi á sjónvarpið á kvöldin þá er sársaukinn alltaf til staðar," sagði Cisse.

,,Ég get náð að bíta á jaxlinn eitt tímabil en ekki tvö eða þrjú. Þetta er mitt síðasta tímabil held ég."

Cisse er í dag á mála hjá Bastia í Frakklandi en á ferli sínum hefur hann einnig spilað með Auxerre, Liverpool, Marseille, Sunderland, Panathinaikos, Lazio, QPR og Kuban Krasnodar.
Athugasemdir
banner