Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. október 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Lambert: Ekki dæma okkur
Lambert og Roy Kean aðstoðarmaður hans.
Lambert og Roy Kean aðstoðarmaður hans.
Mynd: Getty Images
Paul Lambert, stjóri Aston Villa, segir að ekki sé hægt að dæma frammistöðu liðsins ennþá.

Aston Villa er í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur ekki skorað í rúma átta klukkutíma.

Lambert vill meina að erfitt leikjaplan í byrjun hafi sett strik í reikninginn.

,,Í fyrstu níu leikjunum höfum við mætt topp fimm og það hefur verið mjög erfitt," sagði Lambert.

,,Við verðum mun betri á þessu tímabili en því síðasta. Það er klárt mál," bætti Lambert við borubrattur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner