Hachim Mastour er kannski ekki nafn sem margir þekkja en hann er titlaður sem vonarstjarna AC Milan á Ítalíu og má meðal annars sjá í myndbandinu hér fyrir neðan af hverju það er.
Mastour, sem er 16 ára gamall, spilaði nokkrar mínútur í byrjun tímabils hjá Milan en hefur lítið sem ekkert spilað með aðalliðinu að undanförnu.
Hann hefur verið að spila með unglinga- og varaliði félagsins og gerði hann einmitt frábært mark með liðinu gegn Sassuolo í gær.
Hægt er að sjá magnað mark hans hér fyrir neðan en það byrjar allt saman á 0:10.
Athugasemdir