Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. október 2014 13:30
Elvar Geir Magnússon
Ochoa orðaður við Liverpool
Ochoa var frábær með Mexíkó á HM.
Ochoa var frábær með Mexíkó á HM.
Mynd: Twitter
Guillermo Ochoa, landsliðsmarkvörður Mexíkó, er orðaður við Liverpool.

Framtíð Simon Mignolet, markvarðar Liverpool, hefur nokkuð verið í umræðunni en hann hefur ekki staðið undir væntingum. Enska félagið hefur gert tilraunir til að fá Victor Valdes og Neto hjá Fiorentina.

Nú er sagt að Brendan Rodgers horfi til Ochoa sem er 29 ára og gekk í raðir Malaga í sumar. Honum hefur ekki tekist að vinna markmannsstöðuna af Carlos Kameni.

Ochoa sýndi frábæra takta á HM í sumar og hefur Malaga sagt að staða leikmannsins verði skoðuð í desember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner