Leikur vikunnar á SkjáSporti er viðureign stórliðanna Bayern München og Borussia Dortmund á laugardag klukkan 17:30. Bayern er á toppi deildarinnar en Dortmund hefur leikið langt undir væntingum og er rétt fyrir ofan fallsætin.
Mats Hummels, fyrirliði Dortmund, vonast til þess að sigur gegn Bayern geti hjálpað Dortmund að komast á beinu brautina. Guli kafbáturinn er án sigurs í síðustu sex leikjum en fimm af þeim enduðu með tapi.
„Við höfum aldrei þurft að fara í gegnum svona kafla og þetta hefur neikvæð áhrif á sjálfstraustið. En við tókum sigur gegn St Pauli í bikarnum (3-0) og það er skref í rétta átt. Þetta er stórleikur á laugardag og gullið tækifæri til að endurheimta sjálfstraustið," segir Hummels.
Dortmund vann 2-0 sigur gegn Bayern þegar liðin mættust í leiknum um Ofurbikarinn fyrir tímabilið. Bayern hefur hinsvegar verið í öðrum klassa í þýsku deildinni, er með fjögurra stiga forystu og ósigrað á toppnum.
Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri Bayern, lýsti yfir áhuga á sóknarmiðjumanninum Marco Reus hjá Dortmund fyrr í þessari viku og tímasetningin á þeim ummælum eiga bara eftir að kynda undir leik helgarinnar.
Athugasemdir