Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 30. október 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Sturridge: Balotelli er stundum misskilinn
Mynd: Getty Images
,,Mario er frábær náungi en hann er stundum misskilinn," segir Daniel Sturridge framherji Liverpool um liðsfélaga sinn Mario Balotelli.

Balotelli hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun ferilsins hjá Liverpool en Sturridge kann vel við Ítalann.

,,Við náum vel saman utan vallar í búningsklefanum. Við erum alltaf að grínast og hlæja."

,,Það er ekkert gríðarlega mikilvægt að vera vinir til eiga gott samband við einhvern innan vallar."

,,Ef þið eruð ekki vinir þá getið þið samt unnið vel saman innan vallar en það er líka hægt að vera góðir vinir og vinna vel saman."

Athugasemdir
banner
banner