Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 30. október 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Tom Ince til Nottingham Forest á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur fengið kantmanninn Tom Ince á láni frá Hull út tímabilið.

Ince sló í gegn með Blackpool í Championship deildinni síðasta vetur og var mjög eftirsóttur í kjölfarið.

Hann rúntaði ásamt föður sínum Paul Ince á milli félaga í janúar þar sem hann fór í margar samningaviðræður. Á endanum ákvað Tom að ganga til liðs við Crystal Palace á lánssamningi.

Í sumar var Ince orðaður við Inter en hann ákvað frekar að velja Hull.

Ince hefur aftur á móti verið úti í kuldanum hjá Hull á tímabilinu og hann er nú mættur aftur í Championship deildina.
Athugasemdir
banner
banner