ÍBV er að reyna að fá systurnar og landsliðskonurnar Margréti Láru og Elísu Viðarsdætur í sínar raðir.
Báðar spiluðu þær með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en Margrét Lára staðfesti á dögunum að hún sé á heimleið. Margrét og Elísa ólust upp hjá ÍBV og Eyjamenn vilja fá þær heim.

„ÍBV er að sækjast er að sækjast eftir þeirra kröftum og málið er í þeirra höndum," sagði Jón Óli Daníelsson íþróttafulltrúi ÍBV í samtali við Fótbolta.net í dag.
Fleiri félög í Pepsi-deild kvenna hafa áhuga á Margréti og Elísu en Valur hefur þar meðal annars verið nefnt til sögunnar.
Rasmus Christiansen, varnarmaður KR, er unnusti Elísu og hann gæti einnig verið að færa sig um set.
Óskar Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, staðfesti í gær að Rasmus sé með tilboð frá Eyjamönnum en Valsmenn eru einnig að reyna að fá hann í sínar raðir eins og komið hefur fram.