Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 30. október 2015 11:43
Magnús Már Einarsson
Víðir Þorvarðarson hættur í ÍBV - Á leið í Fylki?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðir Þorvarðarson hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Samningur Víðis við Eyjamenn rennur út um áramótin.

Hinn 23 ára gamli Víðir er uppalinn hjá ÍBV og hefur leikið með liðinu allan sinn feril fyrir utan árin 2010 og 2011 þegar hann var hjá Stjörnunni.

„Ég bý í bænum og mér finnst ég þurfa nýtt upphaf," sagði Víðir við Fótbolta.net í dag.

„Mér fannst ég vera farinn að staðna aðeins í Eyjum og ég vil byrja upp á nýtt á nýjum stað."

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er möguleiki á að Víðir gangi til liðs við Fylki en þar er Hermann Hreiðarsson, fyrrum þjálfari ÍBV, við stjórnvölinn. Víðir vildi þó ekki staðfesta það.

Víðir hefur skorað tuttugu mörk í 97 deildar og bikarleikjum með ÍBV á ferli sínum en í sumar skoraði hann þrjú mörk í 21 leik í Pepsi-deildinni.
Slapp
banner
banner
banner