18 breskir fótboltaáhugamenn eru í vandræðum eftir að hafa stórskemmt sumarbústað á Íslandi.
Málið hefur borist til lögreglunnar á Suðurlandi og kæra verður lögð fram á næstunni.
Málið hefur borist til lögreglunnar á Suðurlandi og kæra verður lögð fram á næstunni.
„Í gærdag tilkynnti eigandi sumarbústaðar í Biskupstungum að 18 breskir knattspyrnuáhangendur, sem hann leigði bústaðinn, hefðu stórskemmt hann. Mennirnir voru sagðir hafa verið með mjög ölvaðir og engu eirt. Eigandinn er að láta meta tjónið og mun leggja fram formlega kæru á Bretana," segir á Facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi.
Ekki fylgir sögunni hvort fótboltáhugamennirnir hafi allir haldið með sama liði en þeir eiga væntanlega yfir höfði sér refsingu fyrir athæfið.
Athugasemdir