Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Enski boltinn - Heimskur og heimskari
Innkastið - Flugbraut fyrir meistarana og norðlensk neikvæðni
Niðurtalningin - Endar titillinn enn eitt árið á Hlíðarenda?
Niðurtalningin - Silfur er alls ekki nóg í Kópavoginum
Niðurtalningin - Dreymir um að endurtaka leikinn frá 2012
Útvarpsþátturinn - Brottvísun sem eyðilagði leikinn
Niðurtalningin - Skemmtikraftarnir úr Kaplakrika
Niðurtalningin - Nýjar áherslur og spennandi tímar í Garðabænum
Niðurtalningin - Nýir tímar í Laugardalnum
Niðurtalningin - Hamingjan er í Víkinni
Hugarburðarbolti Þáttur 12
Niðurtalningin - Andinn á Sauðárkróki er einstakur
Enski boltinn - Er titilbaráttan bara búin?
Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki
Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli
Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
Hugarburðarbolti Þáttur 11
   mán 30. nóvember 2015 12:15
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Björn Bragi: Maður setur nafnið sitt stoltur við þetta
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
„Þetta er hugmynd sem örugglega fleiri hafa fengið en við ákváðum að bomba okkur í þetta," segir Björn Bragi Arnarsson sem hefur gefið út bókina „Áfram Ísland" en þar er fjallað um leið íslenska landsliðiðsins í lokakeppni EM og fjallað um strákana í liðinu.

Bókin hefur fengið ansi góð viðbrögð og er komin í allar helstu bókabúðir en Björn Bragi var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag.

„Við vildum gera þetta „djúsí" og eigulegt, góða heimild um þetta geggjaða afrek. Við erum sjálfir rosalega ánægðir með útkomuna og maður setur nafnið sitt stoltur við þetta," segir Björn Bragi.

Bókin er stútfull af skemmtilegum viðtölum, áhugaverðum upplýsingum og síðast en ekki síst eru glæsilegar ljósmyndir Hafliða Breiðfjörð að njóta sín gríðarlega vel. Þar má meðal annars finna magnaða mynd af Gylfa Sigurðssyni sem tekin var í Lettlandi þar sem hann er umkringdur andstæðingum.

„Þetta er ein flottasta fótboltamynd sem ég hef séð og minnir mann á fræga mynd af Maradona á móti Belgíu. Þarna ertu með á mynd fimm menn sem eru á Gylfa," segir Björn Bragi.

Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum hér að ofan en þar er einnig rætt um enska boltann en Björn Bragi er stuðningsmaður Tottenham.

Sjá einnig:
Upptaka - Hlustaðu á útvarpsþáttinn í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner
banner