Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 30. nóvember 2015 20:07
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Ari Freyr og Hallgrímur unnu gegn Esbjerg
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Odense 2 - 1 Esbjerg
0-1 N. Nielsen ('20)
1-1 R. Festeren ('48)
2-1 R. Falk ('93)

Ari Freyr Skúlason og Hallgrímur Jónasson léku allan leikinn er Odense lagði Esbjerg af velli í dönsku efstu deildinni.

Rasmussarnir tveir, þeir Rasmus Festeren og Rasmus Falk, sáu um að gera mörk Odense í leiknum eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Sigurinn fleytir Odense í sjöunda sæti deildarinnar og er liðið sjö stigum frá Midtjylland og Aalborg sem verma annað og þriðja sæti deildarinnar, sem veita þátttökurétt í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner