Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 30. nóvember 2015 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Fekir dreymir um að spila fyrir Barcelona
Nabil Fekir á sér þann draum að spila fyrir Barcelona
Nabil Fekir á sér þann draum að spila fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Nabil Fekir, leikmaður Lyon, segist eiga sér þann draum að spila einn daginn fyrir spænska stórveldið, Barcelona.

Fekir hefur myndað eitrað sóknarpar með Alexandre Lacazette hjá Lyon, en saman skoruðu þeir 40 mörk á síðasta tímabili.

Fekir er staðráðinn í því að halda áfram að spila vel fyrir Lyon, en viðurkennir þó að hann beini sjónum sínum að Camp Nou í framtíðinni.

"Í höfðinu mínu á ég mér marga drauma, en ég vil ekki tala um þá alla strax. Ég vil gera mitt besta fyrir Lyon og ganga síðan til liðs við stærra félag, það er markmiðið mitt," sagði Fekir í samtali við L'Equipe.

"Ég held mikið upp á Barcelona og ég veit að það er mikil vinna framundan. Að spila fyrir Barcelona einn daginn er draumur."
Athugasemdir
banner