Í dag var opinberað hvaða þjálfarar eru tilnefndir sem þjálfari ársins fyrir Ballon d’Or verðlaunahátíðina sem verður í Sviss 11. janúar næstkomandi.
Þrír eru tilnefndir; Pep Guardiola þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München, Luis Enrique sem stýrði Barcelona til þrennunar og svo Jorge Sampaoli, landsliðsþjálfari Síle.
Sampaoli gerði Síle að Suður-Ameríku meisturum í sumar.
Í kvennaboltanum voru eftirtaldir þjálfarar tilnefndir: Mark Sampson þjálfari Englands, Jill Ellis þjálfari Bandaríkjanna og Norio Sasak þjálfari Japan.
Athugasemdir