Heimild: Goal
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, býst við því að Philippe Coutinho verði heill heilsu þegar að Liverpool mætir Southampton í deildarbikarnum á miðvikudaginn.
Coutinho hlaut minniháttar meiðsli aftan í læri í 4-1 sigrinum á móti Manchester City og var ekki með gegn Bordeaux í síðustu viku í varúðarskyni.
Coutinho hlaut minniháttar meiðsli aftan í læri í 4-1 sigrinum á móti Manchester City og var ekki með gegn Bordeaux í síðustu viku í varúðarskyni.
Hann var heldur ekki með Liverpool í sigrinum gegn Swansea í gær, en Klopp býst fastlega við því að Coutinho muni koma við sögu gegn Southampton.
"Philippe æfði af ákefð á laugardaginn, en við ákváðum þó tveimur eða þremur dögum fyrir leik að við myndum ekki spila honum í leiknum," sagði Klopp.
"Ég held þó að hann sé tilbúinn núna. Ég sá hann í búningsklefanum og hann leit vel út. Ég mun ræða við hann í dag, en ég held að hann sé tilbúinn fyrir leikinn gegn Southampton."
Athugasemdir