Ferskir vindar blása hjá Liverpool eftir ráðningu Jurgen Klopp og ekki minnkaði stemningin þegar Steven Gerrard mætti aftur til æfinga á Melwood æfingasvæðinu. Gerrard æfir með Liverpool meðan það er frí á tímabilinu í MLS-deildinni en Gerrard leikur þar fyrir LA Galaxy. Klopp tók Gerrard opnum örmum en hefur þó sagt að ekki komi til greina að fá þennan fyrrum fyrirliða lánaðan í vetur.
Ljósmyndari Getty Images mætti á æfingu Liverpool í morgun og má sjá myndaveislu hér að neðan.
Athugasemdir