Starf Steve McClaren, stjóra Newcastle, er ekki í hættu þrátt fyrir slakt gengi að undanförnu en Sky Sports segir frá þessu í dag.
Newcastle tapaði 5-1 gegn Crystal Palace um helgina og margir stuðningsmenn liðsins eru farnir að setja spurninagmerki við McClaren.
Newcastle tapaði 5-1 gegn Crystal Palace um helgina og margir stuðningsmenn liðsins eru farnir að setja spurninagmerki við McClaren.
Newcastle er í 19. sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur einungis unnið tvo leiki í fyrstu 14 umferðunum.
Starf McClaren er ekki ennþá í hættu en stjórn Newcastle gæti endurskoðað ákvörðun sína fljótlega ef að gengi liðsins fer ekki að batna.
McClaren er sjálfur að reyna að blása lífi í leik Newcastle en hann skipaði leikmönnum að mæta á aukaæfingu í gær, á degi sem er vanalega frídagur hjá leikmönnum.
Athugasemdir