Þrjú mörk eru tilnefnd í vali á marki ársins 2015 en sigurvegarinn mun fá Puskas verðlaunin á verðlaunaafhendingu í Zurich þann 11. janúar næstkomandi.
Lionel Messi er tilnefndur fyrir magnaðan einleik gegn Athletic Bilbao í spænska konungsbikarnum í vor.
Alessandro Florenzi, leikmaður Roma, er tilnefndur fyrir ótrúlegt skot utan af kanti í stöng og inn þegar ítalska liðið fékk Barcelona í heimsókn í Meistaradeildinni.
Brasilíski framherjinn Wendell Lira er síðan tilnefndur fyrir hjólhestaspyrnu sína með Goianésia í leik í mars síðastliðnum.

Hér má sjá mörkin öll. Hvað er besta markið að þínu mati? Tjáðu þig í ummælakerfinu að neðan.
Athugasemdir