Vinstri bakvörðurinn Benedikt Óli Breiðdal hefur gengið til liðs við ÍR.
Benedikt Óli kemur til ÍR frá Fylki en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Benedikt Óli kemur til ÍR frá Fylki en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Benedikt var á láni hjá Gróttu síðasta sumar en hann hjálpaði liðinu að komast upp úr 2. deildinni.
,,Það er mikil ánægja hjá okkur ÍR ingum að bæta þessum flotta leikmanni við okkar hóp og við ÍR ingar bindum miklar vonir við þennan unga og ferska leikmann á næstu árum," sagði Arnar Þór Valsson þjálfari ÍR.
ÍR fékk einnig liðsstyrk fyrr í vikunni þegar varnarmaðurinn Þorsteinn Jóhannsson kom til liðsins frá Sindra.
Athugasemdir