Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. janúar 2015 18:25
Arnar Geir Halldórsson
Daley Blind: Líður best á miðjunni
Blind var öflugur í dag
Blind var öflugur í dag
Mynd: Getty Images
Daley Blind átti góðan leik á miðjunni hjá Manchester United í dag.

,,Við erum ánægðir með úrslitin. Við vildum reyna að halda boltanum og skapa marktækifæri. Við vorum betra liðið, héldum boltanum vel og skoruðum mörk. Við erum að nálgast stílinn sem van Gaal vill að við spilum. Við erum á réttri leið og erum ánægðir." sagði Hollendingurinn.

Sigur Man Utd var aldrei í hættu en Leicester náði þó að minnka muninn í seinni hálfleik.

,,Þú vilt að sjálfsögðu halda hreinu, en 3-1 eru góð úrslit. Frammistaða liðsins var góð og það skiptir mestu máli"

Daley Blind hefur átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi á Old Trafford en hann hefur glímt við meiðsli. Þá hefur hann verið látinn leysa nokkrar stöður en hann kýs helst að spila á miðjunni.

,,Ég naut þess í dag. Ég fékk svæði til að stjórna spilinu og spila boltanum fram á við. Það skiptir mig ekki máli hvar ég spila. Ég kýs miðjuna frekar en ef þjálfarinn þarf mig í vörnina þá get ég leyst það." sagði Blind.


Athugasemdir
banner
banner