Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 31. janúar 2015 07:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Keflavíkur 
Haraldur Freyr framlengir við Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, hefur framlengt samning sinn við félagið.

Samningur hans átti að renna út næsta haust en Haraldur hefur nú framlengt hann til haustsins 2016. Heimasíða Keflavíkur greinir frá.

Haraldur Freyr er 33 ára gamall og lék með öllum yngri flokkum Keflavíkur. Hann lék fyrst með meistaraflokki árið 1999 og á nú 166 deildarleiki að baki og hefur skorað í þeim 8 mörk

Haraldur hefur einnig leikið 26 bikarleiki og skorað fimm mörk og hann varð bikarmeistari með Keflavík árið 2004. Hann lék í Noregi og Kýpur á árunum 2005 til 2009 og aftur í Noregi seinni hluta sumarsins 2011.

Haraldur hefur leikið með öllum landsliðum Íslands og á að baki tvo leiki með A-landsliðinu.

Á síðasta tímabili var Haraldur valinn besti leikmaður Keflvíkinga.
Athugasemdir
banner
banner