Daníel Leó Grétarsson og Aron Elís Þrándarson gengu til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Álasund fyrr í vetur.
Þeir komu báðir inn á í hálfleik í æfingaleik gegn Floro en liðið undirbýr sig nú af kappi áður en deildarkeppnin hefst í mars.
Aron Elís klúðraði vítaspyrnu en Daníel Leó gerði síðasta mark Álasund í 4-0 sigri.
Á heimasíðu félagsins má sjá myndband sem sýnir allt það helsta úr leiknum. Mark Daníels kemur eftir rúmlega eina og hálfa mínútu.
Smelltu hér til að sjá myndbandið
Athugasemdir