lau 31. janúar 2015 17:52
Arnar Geir Halldórsson
Rodgers: Sturridge er í heimsklassa
Sturridge er mættur aftur á völlinn
Sturridge er mættur aftur á völlinn
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers var skiljanlega í skýjunum með að endurheimta Daniel Sturridge en Sturridge skoraði seinna mark Liverpool gegn West Ham í dag.

,,Sturridge er heimsklassaleikmaður. Hann hefur sýnt það hingað til á ferli sínum. Hann lagði hart að sér og nýtti tækifærið um leið og það gafst. Þetta var stórkostleg sending frá Coutinho." sagði Rodgers.

Sigurinn var gífurlega mikilvægur fyrir Liverpool en liðið er í baráttu við West Ham um Evrópusæti.

,,Við vorum auðvitað vonsviknir eftir leikinn á móti Chelsea og við vissum að við værum að fara spila mjög erfiðan leik hérna í dag. West Ham hafa verið frábærir á tímabilinu. Við þurftum að vera tilbúnir að berjast og við gerðum það frábærlega. Við hefðum kannski átt að skora fleiri mörk." sagði Rodgers, sáttur með dagsverkið.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner