Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 31. janúar 2015 07:00
Magnús Már Einarsson
Rúrik Andri semur við Fram
Mynd: Fram
Sóknarmaðurinn Rúrik Andri Þorfinnsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélagið Fram.

Rúrik sem er uppalinn í Fram er 23 ára gamall. Hann lék einn deildarleik með Fram árið 2009 en skipti síðan yfir í Fylki þar sem hann lék 21 leik í efstu deild.

Hann á að baki 6 leiki með U17 ára liði Íslands.

Rúrik tók sér frí frá knattspyrnu um skeið vegna meiðsla sem hann er nú búinn að yfirstíga.

,,Fram fagnar því að fá Rúrik heim og væntir mikils af honum á komandi leiktíð," segir í tilkynningu frá Fram.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner