Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. mars 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Falcao jafnar markamet kólumbíska landsliðsins
Á skotskónum.
Á skotskónum.
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao, framherji Manchester United, hefur jafnað markamet kólumbíska landsliðsins.

Falcao skoraði í 3-1 sigri á Kúveit í vináttuleik í gær.

Hann hefur nú skorað 24 mörk með kolumbíska landsliðinu sem er jöfnun á meti.

Falcao skoraði einnig tvívegis í 6-0 sigri á Bahrain í vináttuleik í síðustu viku.

Falcao hefur skorað fjögur mörk í 22 leikjum með Manchester United en hann er í láni hjá félaginu frá Monaco. United getur keypt hann á 43,5 milljónir punda í sumar.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner