Mats Hummels, varnarmaður Borussia Dortmund, harðneitar því að hafa lofað Sir Alex Ferguson að hann myndi ganga í raðir Manchester United.
Þessi öflugi miðvörður hefur verið sterklega orðaður við United undanfarin ár, en sjálfur útilokar hann ekki að yfirgefa Dortmund í sumar.
Breskir fjölmiðlar halda því fram að Hummels hafi árið 2012 lofað Ferguson að hann myndi ganga til liðs við United, en þetta á að hafa gerst þegar Skotinn mætti á bikarúrslitaleik Dortmund gegn Bayern Munchen.
Hann harðneitar þó að hafa lofað Ferguson nokkrum sköpuðum hlut.

,,Bara svo það sé á hreinu, þá er þetta svokallaða "loforð" alger skáldskapur, og þá er ég að orða þetta kurteisislega," skrifaði Hummels á Twitter.
Hummels hefur verið leikmaður Dortmund frá árinu 2008, en hann kom til félagsins frá Bayern Munchen.
Athugasemdir