Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 31. mars 2015 06:00
Hafliði Breiðfjörð
ÍBV semur við 9 ungar stúlkur
Frá undirskriftinni.
Frá undirskriftinni.
Mynd: ÍBV - Sigfús
Í gær skrifuðu 9 ungar stúlkur undir leikmannasamning við ÍBV. Þetta eru stúlkur úr árgöngum 1996-1999.

,,Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir félagið sem er nú á leið í æfinga og keppnisferð til Spánar," segir í tilkynningu félagsins.

Í ferðina fara 28 leikmenn ásamt 5 manna þjálfara og fararstjórn. Í ferðinni leikur meistaraflokkur einn æfingaleik ásamt því að æfa stíft undir stjórn Ian Jeffs en 2.flokkur mun bæði æfa og taka þátt í Costa Blanca Cup sem er árlegt mót sem haldið er á Costa Blanca svæðinu.

Stúlkurnar sem skrifuðu undir samning í gær eru þær Ásta María Harðardóttir, María Björk Bjarnadóttir, Sigríður Sæland, Díana Helga Guðjónsdóttir, Margrét Íris Einarsdóttir, Inga Hanna Bergsdóttir, Bríet Stefánsdóttir, Sóldís Gylfadóttir og Unnur Ástrós Magnúsdóttir.

Í æfingaferðinni munu fleiri leikmenn skrifa undir leikmannasamninga við ÍBV.

,,ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með nýja samninga og óskar þeim velfarnaðar á komandi leiktímabili," segir að lokum í tilkynningunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner