Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 31. mars 2015 18:16
Magnús Már Einarsson
Mörg félög fylgdust með Ögmundi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Njósnarar frá mörgum félögum fylgdust með markverðinum Ögmundi Kristinssyni í vináttuleik Íslands og Eistlands í dag.

Ögmundur kom til danska félagsins Randers frá Fram síðastliðið sumar.

Samningur Ögmundar rennur út í sumar og mörg félög fylgjast með gangi mála hjá honum.

Total Football umboðsskrifstofan greindi frá því á Twitter í kvöld að njósnarar frá mörgum félögum hefðu verið á leiknum í Eistlandi.

Ögmundur átti fínan leik en hann gat lítið gert við markinu sem Eistar skoruðu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner