Heimild: BBC
Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, sagði á fréttamannafundi í gær að Wayne Rooney yrði fyrirliði Englands í heimsókn landsliðsins til Ítalíu í kvöld.
Hodgson sagði einnig að Harry Kane myndi fá að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir enska landsliðið, eftir að hafa komið inná af bekknum gegn Litháen og skorað rúmlega mínútu síðar í sínum fyrsta A-landsleik.

,,Ég er jafn spenntur og aðrir landsmenn varðandi Harry. Hann hefur átt ótrúlegt tímabil," sagði Rooney á fréttamannafundi í gær.
,,Í upphafi tímabilsins var hann ekki einu sinni með fast byrjunarliðssæti hjá Tottenham en sjáið hann núna, skorandi í hverri viku.
,,Það er frábært fyrir enska knattspyrnu að hafa Englending sem skorar svona mikið í úrvalsdeildinni og skorar svo í sínum fyrsta landsleik. Þetta eru spennandi tímar fyrir alla."
Athugasemdir