Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. mars 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Rooney hefði viljað spila með Shearer
Rooney í stuði.
Rooney í stuði.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney segist vera svekktur að hafa ekki fengið tækifæri til að spila með Alan Shearer í enska landsliðinu.

Rooney hefur verið í lykilhlutverki í enska landsliðinu í fjölda ára og hann verður í eldlínunni í vináttuleik gegn Ítalíu í kvöld.

Rooney var spurður að því á fréttamannafundi í gær hvaða leikmanni hann hefði helst viljað spila með frammi hjá enska landsliðinu.

,,Ég myndi líklega segja Alan Shearer því að ég var aðdáandi hans þegar ég ólst upp," sagði Rooney.

,,Ég elskaði hvernig hann spilaði og hann var alvöru markaskorari eins og tölfræðin sýnir. Ég hefði spilað vel með hann við hliðina á mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner