,,Þetta byrjaði fínt og við komum ferskir út í leikinn en þetta fjaraði heldur fljótt út," sagði Rúrik Gíslason sem skoraði mark Íslands í 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í vináttulandsleik ytra í dag.
,,Þetta var heldur léleg frammistaða eftir fyrsta hálftímann," hélt Rúrik áfram en hann skoraði mark Íslands á 9. mínútu leiksins.
,,Það er alltaf gaman að skora," sagði hann en hann fékk engar mínútur í leiknum gegn Kasakstan á laugardaginn.
,,Það var mjög svekkjandi en þjálfararnir vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera og þetta snýst um að halda áfram að brosa og styðja þá sem spila hverju sinni og nýta þær mínútur sem maður fær."
Næsti leikur er gegn Tékkum heima í júní en sigurliðið úr þeim leik endar á toppi riðilsins fram á haust.
,,Þjálfararnir eru með þetta under control og velja liðið hverju sinni. Ég er ávallt tilbúinn þegar kallið kemur."
Dómarar leiksins í dag komu frá Lettlandi og slepptu tveimur augljósum vítaspyrnum, eðal annars þegar Rúrik átti sendingu sem fór í hönd varnarmanns Eista.
,,Ég skil ekki afhverju dómarinn er þarna sem stendur meter frá, fjórði og fimmti dómarinn, sprotadómarinn, ef hann hefur ekki pung í að kalla vítið. Þetta var engin spurning, þetta var víti."
Nánar er rætt við Rúrik í sjónvarpinu að ofan en hann var ekki hrifinn af blautum vellinum.
,,Völlurinn var eins og tjaldstæði og það var erfitt að spila á honum en það var líka erfitt fyrir þá."
Athugasemdir