„Við viljum vinna leikinn og finna sigurtilfinningu en það er ekki það allra mikilvægasta. Það er mikilvægt að fá leikæfingu fyrir þá sem þurfa," segir Alfreð Finnbogason í aðdraganda vináttulandsleiksins gegn Noregi.
Alfreð skipti í Augsburg í janúarglugganum og það reyndist honum heldur betur gæfuspor. Hann lék mjög vel með liðinu og er í toppstandi þegar tvær vikur eru í fyrsta leik Íslands á EM:
„Mér líður mjög vel. Það eru tvær vikur síðan ég spilaði og ég hef eiginlega náð fullkomnum undirbúningi fyrir EM," segir Alfreð í viðtali sem sjá má í heild hér að ofan.
Viðtalið var tekið á æfingu íslenska liðsins í Osló en á miðvikudag verður leikið gegn Noregi.
Athugasemdir