Fótbolti.net gerir Pepsi-deild kvenna góð skil í sumar. 4. umferðin fór fram um helgina og nú er komið að því að opinbera lið umferðarinnar.
Elín Metta Jensen og Margrét Lára Viðarsdóttir hjálpuðu Val að vinna FH 1-0. Valur varð um leið fyrsta liðið sem naði að skora hjá Fimleikafélaginu í sumar.
Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir voru í stuði þegar Breiaðblik sótti góðan útisigur á Selfoss en lokatölur þar urðu 2-1.
Lára Kristín Pedersen átti mjög góðan dag á miðjunni þegar Stjarnan sigraði ÍBV á útivelli en þar skoraði Harpa Þorsteinsdóttir eina markið. Arianna Jeanette Romero var best í liði ÍBV í þeim leik en hún var öflug í vörninni.
Þór/KA var betri aðilinn í 1-1 jafntefli gegn KR en Hulda Ósk Jónsdóttir átti góðan dag fyrir heimastúlkur. Hrafnhildur Agnarsdóttir, markvörður KR, varði oft frábærlega og tryggði liðinu stig.
Megan Dunnigan tryggði ÍA stig gegn Fylki á lokasekúndunum í Árbænum en þar var Sandra Sif Magnúsdóttir best í liði heimastúlkna.
Úrvalslið 4. umferðar Pepsi-deildar kvenna
Hrafnhildur Agnarsdóttir - KR
Sandra Sif Magnúsdóttir - Fylkir
Arianna Jeanette Romero - ÍBV
Megan Dunnigan - ÍA
Hallbera Guðný Gísladóttir - Breiðablik
Hulda Ósk Jónsdóttir - Þór/KA
Lára Kristín Pedersen - Stjarnan
Margrét Lára Viðarsdóttir - Valur
Elín Metta Jensen - Valur
Fanndís Friðriksdóttir - Breiðablik
Harpa Þorsteinsdóttir - Stjarnan
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir