þri 31. maí 2016 11:00
Magnús Már Einarsson
Mata og Blind til sölu
Mata er ekki í uppáhaldi hjá Mourinho.
Mata er ekki í uppáhaldi hjá Mourinho.
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í dag að Jose Mourinho sé tilbúinn að selja Daley Blind og Juan Mata frá Manchester United í sumar.

Leikmennirnir eru til sölu ef ásættanleg tilboð berast og ef United nær að finna menn í þeirra stað.

Fréttirnar af Mata koma lítið á óvart en Mourinho seldi hann frá Chelsea í janúar árið 2014.

Tímabilið áður var Mata valinn leikmaður ársins hjá Chelsea en Mourinho var ekki jafn hrifinn af Spánverjanum og aðrir.

Mourinho var ósáttur við vinnuframlag og hraða Mata auk þess sem hann hafði efasemdir um að hann passaði í skipulagið hjá Chelsea. Því var Mata seldur og Mourinho virðist nú ætla að selja hann í annað skipti.
Athugasemdir
banner
banner
banner