Austurríki 2 - 1 Malta
1-0 Marko Arnautovic ('4)
2-0 Alessandro Schoepf ('18)
2-1 David Alaba ('87, sjálfsmark)
1-0 Marko Arnautovic ('4)
2-0 Alessandro Schoepf ('18)
2-1 David Alaba ('87, sjálfsmark)
Austurríkismenn unnu Möltu 2-1 í vináttuleik í kvöld. Austurríkismenn eru eins og kunnugt er með Íslandi í riðli á EM í Frakklandi.
Mark Arnautovic, leikmaður Stoke, skoraði snemma leiks og Alessandro Schoepf, miðjumaður Schalke, bætti síðan við öðru marki.
David Alaba, skærasta stjarna Austurríkis, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark undir lokin.
Austurríki mætir Hollandi í síðasta leik sínum fyrir EM á laugardag áður en liðið leikur gegn Ungverjum á mótinu í Frakklandi þann 14. júní.
Athugasemdir