Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. júlí 2014 15:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir.is 
Atli Sigurjóns framlengir hjá KR - Þór og Fram höfðu áhuga
Atli Sigurjónsson, leikmaður KR.
Atli Sigurjónsson, leikmaður KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Sigurjónsson hefur ákveðið að skrifa undir eins árs framlengingu á samningi sínum við KR. Núgildandi samningur hans átti að renna út í haust.

Vísir.is greinir frá því að bæði Fram og Þór hafi haft mikinn áhuga á að fá Atla í sínar raðir.

„Það var áhugi á honum og hann var á báðum áttum held ég. Það eru öll lið hringjandi og spyrjandi um strákana sem spila minna eins og gengur og gerist,“ sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, við Tómas Þór Þórðarson á Vísi.

Atli er uppalinn hjá Þór en er á sínu þriðja ári með vesturbæjarliðinu. Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum KR í Pepsi-deildinni í sumar og skorað eitt mark.

KR mætir ÍBV í Vestmannaeyjum í undanúrslitum Borgunarbikarsins í dag klukkan 18:00 en leikurinn er í beinni textalýsingu hjá okkur og sýndur á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner