Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 31. júlí 2014 21:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Heimasíða West Ham 
Carl Jenkinson lánaður til West Ham (Staðfest)
Carl Jenkinson heldur á treyju West Ham.
Carl Jenkinson heldur á treyju West Ham.
Mynd: West Ham
West Ham hefur staðfest komu Carl Jenkinson til félagsins á árslöngum lánssamningi frá Arsenal.

Í tilkynningu frá West Ham kemur fram að Jenkinson hafi ákveðið að ganga í raðir West Ham eftir að hafa fengið tilboð frá nokkrum öðrum félögum í ensku úrvalsdeildinni.

Jenkinson er 22 ára gamall hægri bakvörður sem á að baki 37 leiki í úrvalsdeildinni með Arsenal.

Hann gekk í raðir liðsins árið 2011 eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf Charlton.
Athugasemdir
banner
banner
banner