Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
banner
   fim 31. júlí 2014 19:01
Elvar Geir Magnússon
Davíð Viðars: Ömurlegt að fá þessi mörk á okkur í lokin
Davíð Þór Viðarsson.
Davíð Þór Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH-ingar eru í mjög erfiðum málum eftir 4-1 tap fyrir Elfsborg í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Erfitt er að sjá FH fara áfram eftir þetta tap en seinni leikurinn verður í Kaplakrika eftir viku.

„Þetta er ógeðslega svekkjandi. Þeir voru meira með boltann en við sköpuðum hættulegri færi í fyrri hálfleik og vorum óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik," sagði Davíð Þór Viðarsson, miðjumaður FH, eftir leikinn.

„Í seinni hálfleik fáum við þetta víti á okkur sem mér fannst vera hálf ódýrt. Eftir það komum við sterkir til baka og jöfnum en svo veit ég ekki hvort þetta sé kæruleysi eða þreyta... við missum aðeins hausinn."

„Við spiluðum vel fyrstu 75 mínúturnar en héldum ekki einbeitingu. Það var ömurlegt að fá þessi mörk á okkur í lokin."

„Það eru 90 mínútur eftir en það verður ógeðslega erfitt (að ná hagstæðum úrslitum í seinni hálfleiknum) en ég lofa þér því að við munum gera okkar besta til að ná góðum úrslitum þar."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en það tók Anton Ingi Leifsson, fjölmiðlafulltrúi FH.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner