fim 31. júlí 2014 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Herrera: Allir eru að hjálpa mér að aðlagast
Ander Herrera í leik með United.
Ander Herrera í leik með United.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Ander Herrera, leikmaður Manchester United, segist afar spenntur fyrir sinni fyrstu leiktíð með félaginu.

United keypti Herrera frá Athletic Bilbao í sumar og hefur honum gengið vel í leikjum United á æfingamóti í Bandaríkjunum sem nú stendur yfir.

Herrera segir að sjálfstraust sitt sé stöðugt að aukast og að nýju samherjarnir hans hafi hjálpað honum miki.

,,Mér finnst þetta hafa gengið vel hingað til. Líkamlega líður mér vel og ég er stöðugt að bæta andlegu hliðina," sagði Herrera.

,,Ég er ánægður með það sem ég er að gera á vellinum og allir leikmennirnir hjálpa mér í að aðlagast. Sjálfstraustð er að aukast í hverjum leik og ég er spenntur fyrir komandi tímabili."
Athugasemdir
banner
banner