Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 31. júlí 2014 11:19
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Metro.co.uk 
Metro: Vidal búinn í læknisskoðun hjá United
Arturo Vidal.
Arturo Vidal.
Mynd: Getty Images
Háværir orðrómar eru í gangi þessa dagana um að miðjumaðurinn Arturo Vidal muni ganga í raðir Manchester United frá Juventus.

Enska dagblaðið Metro greinir frá því í dag að Vidal hafi þegar staðist læknisskoðun hjá United og að munnlegt samkomulag hafi náðst um samning leikmannsins.

Læknisskoðunin mun hafa farið fram í heimalandi Vidal, Síle, þar sem hann var nýverið staddur í sumarfríi að loknu Heimsmeistaramótinu.

Metro segir einnig að United hafi boðið Vidal 200.000 pund í vikulaun en að félögin eigi enn eftir að ná samkomulagi um kaupverðið.
Athugasemdir
banner
banner