Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 31. júlí 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Newcastle hefur ennþá áhuga á Remy
Remy í átökum í leik með Newcastle.
Remy í átökum í leik með Newcastle.
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur ennþá áhuga á að fá Loic Remy framherja QPR í sínar raðir.

Liverpool var nálægt því að kaupa Remy á 8,5 milljónir punda á dögunum en félagið hætti við kaupin á síðustu stundu.

Remy skoraði 14 mörk á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili og félagið gæti reynt að fá hann aftur í sínar raðir.

,,Það verða auðveld viðskipti ef Loic og QPR ákveða að semja við okkur," sagði Alan Pardew stjóri Newcastle.
Athugasemdir
banner