Heimild: Heimasíða Leiknis
Markvörðurinn Ögmundur Ólafsson er genginn í raðir Leiknis en hann hefur fengið félagaskipti úr Þrótti.
Ögmundur er reynslumikill markvörður sem hefur leikið rúma 100 leiki í úrvals-, 1. og 2. deild karla með Stjörnunni, HK og Þrótti.
Ögmundur er reynslumikill markvörður sem hefur leikið rúma 100 leiki í úrvals-, 1. og 2. deild karla með Stjörnunni, HK og Þrótti.
Ögmundur heldur reyndar af landinu seinni hluta ágústmánaðar en verður flogið aftur til landsins ef á þarf að halda.
Ögmundur kemur til með að fylla skarð Arnars Freys Ólafssonar sem var kallaður til baka úr láni frá Fjölni.
Þá hefur Leiknir endurheimt tvo unga leikmenn; Friðjón Magnússon og Daða Bærings Halldórsson sem léku með KB í 4. deildinni fyrri hluta sumars.
Athugasemdir