,,Liðið spilaði frábæran leik. Það var góur agi í fyrri hálfleik og þeir voru mjög sterkir varnarlega." sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir 5-1 sigur á ÍBV í Borgunarbikarnum í kvöld.
KR tryggði sér um leið sæti í úrslitum keppninnar og leikur þar gegn Keflavík eftir rúman hálfan mánuð.
KR tryggði sér um leið sæti í úrslitum keppninnar og leikur þar gegn Keflavík eftir rúman hálfan mánuð.
,,Við vorum að reyna að spila boltanum á milli okkar á meðan þeir voru meira í þvi að negla löngum boltum inn í teiginn og vona það besta. Það gekk ekki upp hjá þeim en við fórum í nokkrar sóknir og nýttum tvær þeirra vel. Svo kláruðum við þetta mjög vel í síðari hálfleik>/i>," hélt Rúnar áfram, en staðan var 2-0 í hálfleik.
,,Þeir skoruðu strax og það kom smá skjálfti í menn í nokkar mínútur og svo hrisstum við það af okkur. Kjartan kláraði þennan leik síðan með stórkostlegu marki og að mínu mati var þetta þá búið."
,,Sóknarleikurinn var mjög góður og effektívur. Við fórum í hraðar sóknir þegar þeir þurftu að koma fram með marga menn og tóku mikla sénsa. Það opnuðust möguleikar fyrir okkur að fara hratt fram og við nýttum okkur það til fullnustu og skoruðum úr skyndisóknunum."
Athugasemdir