Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 31. júlí 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Torres fer ekki frá Chelsea
Fernando Torres.
Fernando Torres.
Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Fernando Torres mun ekki fara frá Chelsea í sumar.

Torres hefur oft verið orðaður við brottför frá Chelsea en Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að hann fari ekki neitt.

Frá síðasta tímabili er Samuel Eto´o horfinn á braut auk þess sem Romelu Lukaku var seldur til Everton í gær.

,,Nei," sagði Mourinho aðspurður hvort Torres sé á förum frá Chelsea.

,,Það er mikilvægt að hafa þrjá framherja í hópnum og við erum með þrjá framherja; Fernando, Didier (Drogba) og Diego (Costa) svo það er enginn af þeim að fara."
Athugasemdir
banner
banner