Fram hefur lánað framherjann Alexander Aron Davorsson í Aftureldingu út tímabilið.
Alexander Aron var fastur maður í byrjunarliði Fram í sumar og hefur spilað 14 leiki og skorað í þeim tvö mörk.
Liðið hefur verið styrkt vel fram á við að undanförnu og hann hefur nú verið lánaður til Aftureldingar.
Hann þekkir vel til í Mosfellsbænum en Afturelding er hans uppeldisfélag og þar spilaði hann út síðustu leiktíð.
Hann hefur spilað 137 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 41 mark en auk Fram og Aftureldingar hóf hann ferilinn hjá Hvíta Riddaranum, varaliði Aftureldingar, og spilaði á láni með Leikni Fáskrúðsfirði hluta af sumrinu 2012.
Athugasemdir