Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. júlí 2015 22:30
Stefán Haukur
Baba dreymir um að spila fyrir Chelsea
Baba Rahman hefur stóra drauma.
Baba Rahman hefur stóra drauma.
Mynd: Getty Images
Baba Rahman, leikmaður Augsburg, vonast til að félagið samþykki tilboð Chelseaen talið er að Chelsea hafi boðið 17,5 miljónir punda í Ganverjann.

Baba hefur verið orðaður við Chelsea eftir að Filipe Luis sneri aftur til Athletico Madrid þar sem þeir leika báðir vinstri bakvarðarstöðuna.

„Chelsea gerði gott tilboð,“ sagði umboðsmaður Baba. „Hann dreymir um að spila fyrir Chelsea“

Baba spilaði 35 leiki fyrir Augsburg á síðasta tímabili en hann mun þurfa að berjast við Cesar Azpilicueta gangi hann til liðs við Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner