Edin Dzeko, framherji Manchester City, hefur komist að samkomulagi um kjör við ítalska stórliðið Roma. Þetta herma heimildir Sky.
Félögin eiga þó enn eftir að semja um kaupverðið á bosníska landsliðsmanninum, sem hefur í tvígang orðið Englandsmeistari á sínum fjögurra ára ferli hjá City.
Dzeko byrjaði einungis 11 deildarleiki á síðustu leiktíð og viðurkenndi knattspyrnustjórinn Manuel Pellegrini fyrr í mánuðinum að framtíð hans gæti legið annars staðar.

City mun líklega lána Stevan Jovetic og verða Sergio Aguero og Wilfried Bony þá einu framherjar liðsins að öðru óbreyttu.
Athugasemdir