Íþróttafélag Hafnarfjarðar hefur fengið Hilmar Geir Eiðsson í sínar raðir en hann fékk leikheimild með liðinu í dag.
ÍH er í 4. deildinni þar sem liðið er í öðru sæti í sínum riðli og í baráttu um að komast í úrslitakeppnina.
ÍH er í 4. deildinni þar sem liðið er í öðru sæti í sínum riðli og í baráttu um að komast í úrslitakeppnina.
Hilmar sem er þrítugur tók sér frí frá fótbolta eftir tímabilið í fyrra en hann á fjölmarga leiki fyrir Hauka, hann hefur leikið í Pepsi-deildinni bæði með Haukum og Keflavík.
2011 og 2012 lék hann með Keflavík í Pepsi-deildinni en gekk svo aftur í raðir Hauka og lék með liðinu í 1. deildinni næstu tvö árin þar á eftir.
Í dag er lokadagur félagaskipta og fylgist Fótbolti.net grannt með öllum hreyfingum.
Athugasemdir