Raheem Sterling hefur verið mikið í fréttum kringum félagaskipti hans frá Liverpool til Manchester City.
Samband hans við starfsmenn, stuðningsmenn og blaðamenn á Merseyside beið heldur betur hnekki.
Samband hans við starfsmenn, stuðningsmenn og blaðamenn á Merseyside beið heldur betur hnekki.
Sem dæmi hefur Sterling blokkað James Pearce, blaðamann Liverpool Echo, á Twitter.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað það var sem fékk Sterling til að blokka Pearce en umfjöllun hans hefur eitthvað farið í taugarnar á Sterling.
Sterling er langt frá því að vera fyrsti fótboltamaðurinn til að blokka íþróttafréttamann á Twitter. Gary Martin, sóknarmaður KR, blokkað Hjört Hjartarson, sérfræðing Pepsi-markanna og umsjónarmann útvarpsþáttarins Akraborgin.
Ekki er maður í Twitter-náðinni hjá Gary Martin lengur. #Blocked pic.twitter.com/poZhihGEnB
— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) July 20, 2015
Athugasemdir