Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. júlí 2015 19:02
Elvar Geir Magnússon
Rúrik og félagar fögnuðu sigri
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason.
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason lék fyrstu 78 mínúturnar fyrir Nürnberg sem vann 3-2 sigur gegn Heidenheim í þýsku B-deildinni í kvöld.

Danny Blum kom Nürnberg yfir, Robert Leipertz jafnaði en skoraði svo sjálfsmark. Smail Morabit jafnaði í 2-2 en Jan Polak, Tékkinn, skoraði sigurmarkið á 87. mínútu.

Þetta var annar deildarleikur Nürnberg sem tapaði 6-3 fyrir Freiburg í fyrsta leik.

Rúrik gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner